Hæhæhæ! Jæja þá er heimsóknartörninni miklu lokið í bili en síðustu gestirnir yfirgáfu pleisið fyrir nokkrum klukkustundum síðan. Það er búið að vera sjúklega mikið prógram hjá okkur og sjúklega mikið stuð! Síðast þegar ég bloggaði voru amma Þórey og Lára frænka búnar að vera hjá okkur og það hefur nú ansi mikið vatn runnið til sjávar síðan þá skal ég segja ykkur! Við fórum í skemmtilegan afmælisbrunch til vinkonu okkar Margrétar, fögnuðum Midsommar sem er Jónsmessuhátíðin hér og svo komu Kata og Steinunn vinkonur múttu í heimsókn og því næst Björgó frænka með allt gengið í síðustu viku. Við fórum með þeim beinustu leið með ferju yfir til Gotlands og vorum í svaka skemmtilegum bæ sem heitir Visby í 3 daga! Vá þetta var alveg æðisleg ferð í alla staði! Sumar og sól, strönd, vatnsrennibrautagarður og ég veit ekki hvað og hvað! Mamma, pabbi, Björgó og Reimar skelltu sér svo á frumsýningu á leikriti í útileikhúsinu í Skerjagarðinum og síðan var það strandaferð, dagsferð í dýragarð sem heitir Kolmården og 2 daga ferð til Vimmerby þar sem Kalli á þakinu og Lína langsokkur og co dvelja yfir sumartímann! S.s. NÓG að gera og brjálað stuð. Eftir Vimmerby-ferðina breyttumst við bræðurnir í sjóræningja, Pétur Goði í Emil í Kattholti og Erna María í Línu Langsokk! Svo erum við búin að vera með non-stop "show" fyrir fjölskyldu okkar! Verð að viðurkenna að heimili okkar er ansi tómlegt núna! En eftir 2 vikur förum við svo fjölskyldan til Íslands vúhú!!!! Þar til þá er það bara leikskólinn og vinna hjá múttu og pabba og afslöppun til að hlaða aftur batteríin! Erum búin að skella inn júní-myndum inn á fotki síðuna Bæjó!
Velkomin á heimasíðuna okkar!!
Skrifað af Vigfús Fróði Fujio Árnason
laugardagur, 06 maí 2006
Hæ hæ og velkomin á heimasíðuna okkar!!!
Við erum bræðurnir Vigfús Fróði Fujio og Tómas Grettir Tomio!
Ef þú ert vinur okkar eða foreldra minna þá viljum við endilega biðja ykkur um að fá aðgangsorð hjá foreldrum okkar til þess að komast inn á síðuna.